Aðalvalmynd

Leit

Auglýsing

Útskrift

Kominn tími á......

13. ágúst 2008 klukkan 21:53
eins og eitt blogg ekki satt! Ýmislegt búið að bralla síðan í síðasta bloggi! Það sem hæst ber er líklega Krítarferð.

Við Gréta leggjum ferskar af stað keyrandi suður og gistum síðan eins og kóngafólk á hóteli,,,,reyndar eftir helgjarvesen,en fall er fararheill. Við lendum í steikjandi hita á Krít, gistum á ótrúlega krúttlegu hóteli þar sem voru nær eingöngu Íslendingar og allt mjög skemmtilegt fólk. Við vorum ótrúlega duglegar að labba um og skoða. Tókum einn dag í að sigla til eyju sem heitir Santorini, ótrúlega skemmtileg ferð þó svo hafi verið 40 stiga hiti á eyjunni. Svalur Fórum svo líka í vatnagarð með hópa af fólki af hótelinu, rosa stuð og "útsýnið" ekki sem verst! Reyndar held ég að mér hafi nær tekist að tábrjóta mig í þessum garði en kannski ekki við öðru að búast af klaufa eins og mér. Við prófuðum ýmsa veitingastaði og ég reyndi mitt besta í að smakka e-ð óvenjulegt en Gréta sá um að prófa pastað og pizzurnar. Okkur tókst að sólbrenna eins og sönnum íslendingum sæmir. Það var bara ótrúlega notalegt að finna kalda golun þegar við komum til keflavíkur eftir skemmtilega viku! Krít er klárlega staður sem vert er að heimsækja aftur! Takk kærlega fyrir samveruna Gréta mín!

Um versló var ég mest að vinna. Var reyndar í fríi á föstudaginn og fór þá á tónleika með Hvanndalsbræðrum með Þórey og svo á röltið í bænum. Svo var það 80´s þema í vinnunni á laugardaginn,,,allir mættu snemma í greiðslu og tilheyrandi. Það var rosa stemmingu þetta kvöld og við vöktum mikla athygli hjá viðskitpavinunum þetta kvöld. Á sunnudaginn var það svo djamm eftir vinnu, hitti hana Höllu mína í bænum og við skelltum okkur á Kaffi Ak,,en skyndilega vorum við lentar í sjallanum og þar var stuðið. Skemmtilegt kvöld sem endaði með einni fyndnustu leigubílaferð sem við höfum farið í.  Halla gisti svo hérna á sófanum "sínum" í viku. Því auðvitað vorum við ekki hættar að djamma! Ullandi Skelltum okkur til Dalvíkur þegar ég var búin að vinna á föstudaginn. Byrjuðum á að tjalda í garðinum heima hjá Sigga, erum búnar að fá áskrift af tjaldstæði þar og er það nú ekki slæmt enda eru þau fjölskyldan þar ótrúlega gestrisinn og skemmtileg. Siðan var djammað og djammað alla helgina,inná milli vann ég reyndar í tjaldinu hjá FriðrikV á fiskidaginn sjálfan,,,endlaus röð allan daginn. Hitti helling að fólki þessa helgi sem ég hef ekki hitt langa lengi,gamlir lauganemar og svona. Skemmtilega og fróðlega helgi með dularfullum reiðhjólum og öllu. Maður er bara strax farin að hlakka til á næsta ári.Hlæjandi Halla mín það er spurnig hvað við gerum næst til að toppa þetta?? Ullandi

Jæja orðið þónokkuð langt blogg,,,best að fara að hætta þessu rugli!
passið ykkur þegar haustið fer að læðast að ykkur,,,,það er ekki frá því að ég hlakki bara til!  setti inn nokkrar myndir!!!!!
kv. Olla

Til hamingju Ísland

17. júní 2008 klukkan 13:47
Þá er bara 17.júní komin,,,ég held ég sleppi bara skrúðgöngunnni i dag,,,fór i fínustu skrúðgöngu i gær í leikskólanum!

seinustu helgi eyddi ég í borg óttans,,,,vel valin helgi þar sem allt var kreisí hér á eyrinni á meðan! James Blunt var æðislegur,,er rétt að losna við gæsahúðina núna! Verslaði alveg fullt, fórum út að borða á Vox,,,það var geggjað! Arna mín tók mig svo með í bæinn á laugardagskv. þar sem við dönsuðum fullt og hlóum að barþjónum sem heldu að þeir væru svo töff. Og svo var vaknað fyrir allar aldir á sunnudag til að laga til og koma sér af stað heim. Og svo var auðvitða mikið spjallað og hlegið!  Ég held að mér finnist það besta við ferðalög vera það að það er alltaf svo gott að koma heim sama hversu skemmtilegt ferðalagið var.  En takk,takk, Þórey og Maggi fyrir skemmtilega helgi.

Svo er bara sumarfrí í næstu viku,,,eins gott að það verði gott veður,,,,kannski jafnvel spurning um að skella sér i nokkra daga í dalinn fagra!

Styttist óðum í Krítarferð,,,,það verður svo gaman.
Eigiði góðan þjóðhátíðardag
kv. Olla

Áfram 'Ísland

22. maí 2008 klukkan 23:11

Jæja kvöldið í kvöld er kvöld kraftaverkanna,,,,ísland komst áfram í júóvisíon og ég kom með nýtt blogg! Ullandi
en annars frábær frammistaða hjá íslenskum júróvísionförum,,,,horfði á þetta með henni þórey minni og var næstum búin að vekja alla litla þegar úrsltin voru kynnt! En nú stefnir allt í svaka partý á laugdardaginn,,,spurning um að setja klaka í frystin og gera grillið klárt!

Ýmislegt búið að bralla síðans síðast,,,þar á meðal er
 Keila og út að borða með vinnufélögum á leikskólanum. Þar sem ég sýndi snilldartakta og fékk verlaunapengin fyrir að vera lélegumst í keilu. En þetta var skemmtilegt kvöld

vinnufélagar á FV hittum líka og borðuðum dýrindismat á annan í hvítasunnu og skemmtum okkur aðiens fram eftir kvöldi og mætti ég eiturhress í leikskólan morgunin eftir Svalur set jafnvel inn myndir af þessu kvöldi fljótlega!

nóg að gera á leikskólanum þessa daganna þar sem ég er að ljúka við að alaga tvo litla grísi,,,,ótrúlegt hvað þessu litlu grey eru fljót að fara að treysta á mann. Ég sannfærist alltaf meira og meira um að ég sé í bestu vinnu í heimi.....eitt nýlegt dæmi er að þegar nýju börnin mín koma á þriðja degi í leikskólan beygji ég mig niður að öðru þeirra til að heilsa og býst alveg eins við að það snúi sér undan en dúllan labbar til mín og vefur handleggjunum um hálsin á mér. Börn eru yndisleg!

Ohh,,,ég man ekkert meira til að segja hér. Jú,,,,má ekki gleyma því að ég og Gréta ætlum að skella okkur til Krítar 9.júlí og vera í viku,,,,hlakka geggjað til! Og svo fer að styttast í james blunt tónleika,,,víííi!!!!!!

En hafið það gott og munið að styðja Ísland á laugdardag!
kv. Olla

svo syfjuð......

15. apríl 2008 klukkan 22:22
Er svo þreytt að mig langar að sofa í svona viku......en ætla þó að gefa mér tíma til að blogga aðeins fyrir svefnin.

já,,,annsi langt síðan ég bloggaði síðast og nenni ég ekki að fara að telja allt upp sem hefur verið í gangi síðan.
En kannski helstu fréttir eru þær að ég er á leiðinni á tónleika með james blunt 12. júni með góðu fólki,,,,,,hlakka svo til.

um seinustu helgi var nóg að gera eins og oft áður,,,,var að vinna á föstudagskvöldið alltaf nóg að gera! svo var ræs eldsnemma á laugardagsmorgun til að hitta stelpurnar mínar,,,þær þórey, gunnhildi og lindu því við fórum að plata ömmu þóreyrar til að spá í bolla og leggja spil fyrir okkur. Ótrúlega gaman eins og alltaf og fékk mjög skemmtilega spá! Hitti svo Grétu og Þorra og við fórum að hitta Ólöfu og Hilmu Dís,,,,,vá hvað hún hafði stækkað síðan síðast! Síðan var söngkeppnispartý hjá Þórey og skelltum við okkur á rúntin eftir það. Fór síðan í sjallan með Grétu og Þorra,,,Ný dönsk var að spila og ég þarf bara ekkert að fara á ball með þeim aftur! En fínasta kvöld enga að síður. Fór svo aftur eldsnemma á fætur og mætti í hádegismat heim í Glaumbæ og helginni var svo lokið með að mæta á sýningu hjá leikdeild Eflingar á leikritinu þar sem Djölaeyjar rís. Ég átti mjög erfitt með að losa mig við þá kjánatilfinningu að sitja þarna á þesum stað og vera ekki að gera neitt,,,,hef held ég verið hluti af öllum sýningum síðan ég var 16 ára, hvort sem það var þjónn, aðstoðarleikstjóri eða leikari. En þetta var mjög góð sýning,,,bjóst svo sem ekki við öðru. Maður gekk út með kökkin í hálsinum,,,,sem stafaði að því hverstu sorglega sýningin endar og jafnvel líka söknuði eftir ofboðslega skemmitlegum tímum með þessu leikfélagi. Væri svo til í að upplifa eina Landsmóts sýningarhelgi með öllu tilheyrandi! Svalur

jæja ég ætlaði ekki að fara að telja upp einhverja langloku um hvað gerist í mínu líf en þetta er víst bara síðasta helgi. Hlæjandi svo segir maður að það gerist aldrei neitt!

Er ekki alveg að koma sumar,,,,,,hlakka svo til sumarsins! en nú er að finna sér e-ð til að sofna yfir,,,,held að Friends séu tilvaldir til þess!
En hafið það gott og sofiði vel!
kv. Olla

Marsfærslan

09. mars 2008 klukkan 22:01
Jæja Þórey farin að biðja um nýja færslu,,,,,þó svo hún sé líklega  eina manneskjan sem veit allt sem ég skirfa í færsluna nú þegar! En best að hlýða henni,,,,þar sem hún var líka að enda við að elda handa mér,dauðþreyttri og kvefaðri vinkonu sinni, þennan líka dýrindis kjúkling!!!!

En já,,,,margt búið að bralla síðan í síðustu færslu. Það ber kannski fyrst að nefna þorrablót á starfsfólki leikskólans míns þar sem mikið var leikið sér og helgið. Siða hélt ég í bæin að hitta hana Höllu mína sem var hér þessa helgi. Við tókum auðvitað vel á því í djamminu þessa helgina og skemmtum okkur stór vel!

Helgina þar á eftir fór ég í skírn hjá Ólöfu og Hilmari og var stúlkan þeirra skírð því fallega nafni Hilma Dís! Þetta var indæl athöfn og veisla og ekki skemmdi fyrir að hún Þórdís mætti á eyrina í þessu tilefni....alltof langt síðan við höfum hist.
Eftir veislu hélt ég í júróvisionpartý til Þóreyar,,,,,partý þar sem gestalistin var bara ég og hún og Alli litli. Finast kvöld, enda ekki við öðru að búast, og ég mjög sátt við úrslitin.

1.mars var svo árshátiið Akureyarabæjar og skunduðum við þangað, þetta var rosalega fínt kvöld í góðra vina hópi. Morgunin eftir vaknaði ég svo eldhress og lá þá leiðiinn í óvissuferð með staffinu á FriðrikV. Við fórum upp í Mývatnssveit þar sem var leikið sér á sleða og skautum á Mývatni, farið í lónið,,, og borðaður dýrindismatur á Hótel Reynihlíð. Frábær dagur og var maður hás af söng og með strengi í maganum eftir þessa helgi.

Já,,þetta eru held ég topp viðburðir síðan síðast þess á milli vinnur maður bara í báðum vinnunum sínum og reynir að slappa af á milli.

Svo eru bara alveg að koma páskar og ég líka alveg að verða enn eldri,,,,,úff úff.....! Og maður þarf líka að fara að hugsa fyrir sumarfríinu,,,,ohh...hlakka svo til að eiga alvöru sumarfrí!
vona að þið eigið góða viku framundan
kv. Olla

gleðidagur í dag

11. febrúar 2008 klukkan 22:30
......þar sem sýningar á nýrri seríu af One tree hill byrjuðu í dag!!!! Þarf svo lítið til að gleðja mann Glottandi

HRÚTUR 21. mars - 19. apríl
Þú átt allt sem þú þarfnast. Þegar þú skilur það þarftu ekki að rembast eins og rjúpa við staur til að eignast meira. Ef eitthvað vantar, skaltu leita í hjartanu.

Þetta er stjörnuspáin mín í dag,,,,,fannst hún svo flott að ég varð eiginlega bara að spandera á hana einu bloggi,,,,þó svo það sé ekki liðin mánuður síðan ég bloggaði seinast! Ullandi  Held að þetta sé hlutur sem við ættum oftar að átta okkur á,,,,og hætta að bíða alltaf eftir að við eignumst e-ð meira eða upplifum e-ð nýtt og njóta þess bara að vera til nákvæmlega eins og við erum. Jæja þetta eru alltof djúparpælingar fyrir þessa bloggsíðu,,,,svefngalsi og blogg eiga ekki saman!!!

en stutt blogg að þessu sinni,,,,,,,,kannski nógu stutt þannig að sumur nenni að lesa það,,,,hummm...Ullandi
kv. Olla

Búin að blóta þorra!

03. febrúar 2008 klukkan 18:10
Já,,,maður er alltaf jafn duglegur að blogga hérna,,,,en eitt blogg í mánuðu er svo sem ágætist árangur! Janúar er flogin burtu og var svo sem ekki mikið brallað þann mánuðinn! Staffapartý var haldið hjá starfsfólki Friðrik V og var að alger snilld! Farið var í leiki,,borðaður góður matur og sungið og spjallað! Set inn myndir frá því við tækifæri!

Við Linda skelltum okkur til spákonu um daginn,,þetta er kona sem við erum búnar að fara til tvisvar áður og hún er nú meiri snillingurinn! Það er ótrúlegir hlutirnir sem hún getur sagt manni. Ég fékk mjög góða spá og er bara margt að hlakka til held ég! Gaman að heyra einhvern annan segja hvað maður hefur það í rauninni gott þó svo maður viti það alveg sjálfur! Hvet alla til að prófa að fara að láta spá fyrir sér svo ræður fólk því bara hvort það trúir á þetta eða ekki!

Nú um helgina var haldið þorrablót í dalnum fagra og að sjálfsögðu lét maður sig ekki vanta þar! Þorrablót eru alltaf með mjög hefðbundnu sniði og það er held ég það sem er svo skemmtilegt við þau,,,,maður veit alltaf hverju maður á von á! Þarna var maður eins og áður í hópi vina og ættingja,,,hitti fólki sem maður hafði ekki hitt í nokkuð langan tíma,,söng hátt og snjallt í fjöldsöng,,horfði á fínustu skemmtiatriði, spjallaði fram í forstofu og reyndi örlítið fyrir sér á dansgólfinu! Þetta er uppskrift af kvöldi sem ekki getur klikkað! Og stoltið sem maður fyllist þegar allir gestirnir standa upp og syngja Vel er mætt.......er hreinlega frábær tilfinning!

Jæja best að sega þetta gott að bulli,,,,ætlið það gerist nokkuð hér fyrr en í næsta mánuði bara! heheUllandi
kv. Olla

Jólafríið mikla

08. janúar 2008 klukkan 17:56
Nýtt ár er víst mætt á svæðið,,,,,og æðir áfram eins og það síðasta,,,,ég geta svo svarið það,,,það verður komið sumar áður en maður veit af.

Hátíðirnar liðum hjá með öllu tilheyrandi. Meðal þess var,,,,jólaboð föðurfjölskyldunar og jólaboð móðurfjölskyldunar,,,,þar sem maður hittir ættingjana sem maður hittir alltof sjaldan. Stórskemmtilegt annan í jólum ball, með eiginlega ennþá skemmtilegra fyrirpartý! Jónsi kallin stóð að sjálfsögðu fyrir sínu og hitti maður þvílíkt mikið af góðu fólki á ballinu. Milli jóla og nýárs hitti ég meðal annars systur mína og fjölskyldu sem búa í þýskalandi,,,þar á meðal litlu frændur mína sem eru bara alls ekkert litlir lengur og segir það manni kannski e-ð um að maður sé ekkert sérstaklega ungur lengur. Ég mætti á árlega jólvíst Eflingar á Breiðumýri, og fékk þar aftur áminningu um það hversu gömul ég er,,,,þar sem ég sá krakka sem ég var að passa þegar ég var um fermingaraldur og þau sjálf á fermingaraldri!!!!
En aftur náði maður nú tengslum við æskuna þar sem við hittumst nokkur sem voru saman í litlulaugaskóla í gamla daga. Hefði mátt vera betri mætinga en gerum bara betur næst og krakkar takk kærlega fyrir skemmtilegt kvöld.

Gamlárskvöldi eyddi ég heima í sveit,,,með stórkostlegri Kattholtsbrennu og sjörnublysa marþoni með litlu frænkum mínum. Rétt eftir að ný árið gekk í garð brunaði ég á eyrina góðu, þar var margt gott fólk saman komið í partý og þeim heiðurshjónum Gunnhildi og Trausta. þar var spilað Actionary af mikilli list og rústaði stelpuliðið þessu auðvitað. Síðan var litið aðeins við í Sjallanum þar sem allt var pakkað af fólki en engu að síður geðveik stemming.

Þið ykkar sem haldið eftir þennan lestur að ég sé komin með nóg að partýum og öðrum skemmtunum, er það nú aldeilis ekki svoleiðis. helgina seinasta var enn eitt partýið,,,þar ákváðu að hittast nokkrar stelpur sem voru saman í laugskóla. Þetta var hið skemmtilegasta partý með myndsýningum og öðru. Haldið var niður í bæ og hittum þar enn fleiri gamla lauglimi og skellti hersingin sér öll á vélsmiðjuna. Mjög skemtilegt kvöld það.

jæja, þetta er það sem ég eyddi jólunum í svona gróft á litið....og er kannski bara ágætt að hverdagsleikin fari að taka við.
hafið það gott á nýju ári,,,,,og kemur í ljós hvort þessi síða lifir af árið 2008,,,,en setti inn myndir!
kv. Olla

Hittingur

28. desember 2007 klukkan 14:49
jæja, krakkar úr árgangi 83,84,85 og 86 úr litlulaugaskóla

Þá er það hittingur laugardaginn 29. des. Við eigum pantað borð á Greifanum kl 19 og er ekki besta við hittumsta bara þar! við erum of fá til að fá pizzuhlaðborð þannig að hver pantar bara fyrir sig. Eftir mat datt mér í hug að við gætum setið og spjallað á kaffihúsi eða jafnvel heima hjá mér,,,,bara eftir því hvernig stemmingin verður. Og svo auðvitað má kíkja á lifið í bænum seinna um kvöldið fyrir þá sem vilja.

vona að ykkur lítist vel á þetta og endilega látið þetta berast innan hópsins,,,,ef kannski einhverjir hafi ekki fengið smsið. Talið ykkur endilega saman um bila, þið sem eruð að koma úr sveitinni fögru. Ég sjálf fer örugglega e-ð fyrr á laugardaginn og gisti innfrá,,,,,en ef einhver vill nýta það far er það alveg sjálfsagt.
Endilega komið með gamlar myndir eða e-ð þess háttar. Kommentið endlilega hér fyrir neðan.
hlakka til að sjá sem flesta
Kv. Olla

Akureyringur

28. nóvember 2007 klukkan 22:33

Jájá,,,það er víst,,,nú er ég bara orðin Akureyringur......hef átt lögheimili heima í sveit undanfarin ár þó svo ég hafi búið hér,,,,en Akureyrarbær er víst ekkert hrifina af því að starfmenn þeirra séu með lögheimili annarsstaðar! Þannig að frá með deginum í dag á ég lögheimili á Akureyri en ég fer nú seint að kalla mig Akureyring þó svo Akureyri sé alveg ágæt!

Um daginn hitti ég manneskju sem ég hef ekki talað við í nokkur ár og hún fer að spyrja mig hvað ég sé að gera og ég segi voða stolt að ég sé leikskólakennari Hlæjandi Þá segir manneskjan e-ð á þá leiða: nú ég hélt að þú væri e-ð meira þetta er nú svo illa borgað! HALLÓ HALLÓ......ég verð nú dálítið reið svo til að byrja með en ákveð nú ekkert að fara að æsa mig yfir þessu svona í miðjum stórmarkaði en ákveð frekar að segja það sem ég segi yfirleitt þegar þessi mál eru rædd við mig sem gerist nokkuð oft!!!! Öskrandi ÉG VILL FREKAR FÁ MINNI LAUN OG HAFA GAMAN AÐ VINNUNNI EN ÞÁ HÁ LAUN OG VERA Í EINHÆFRI LEIÐINLEGRI VINNU!!!!!!!   

Síðan þetta gerðist hef ég farið að velta fyrir mér kostum vinnunar minnar. Það er ekki í mörgum vinnum sem þú færð jafnvel koss og knús  og oftast fjölmörg hávær HÆ og BÆ  bæði í upphafi og enda vinnudags. Fáar vinnur bjóða bæði uppá útiveru og inniveru í bland og einnig eru fáarvinnur þar sem þú eiginlega situr og stendur jafnmikið. Þú hefur tækifæri á að "leggja" þig eftir matinn. Kostirnir eru svo ótal margir og svo kynnistu auðvitað fjölmörgum yndislegum persónum bæði stórum og smáum.

Þið verðið bara að afsaka þess ræðu sem hefiði kannski aðeins átt að vera beint að þessari ákveðnu manneskju sem ég hitti um daginn,,,en hér hafið þið þetta allavega

En annars allt gott að frétta héðan úr Tjarnarlundinum, jólskapið alltaf að láta meira á sér bera og svona! Næsta helgi er þrælplönuð,,,,á föstudaginn eru litlujól í vinnunni og verður það nú klárlega alger snilld. Svo á sunnudag er bæði laufabrauðsgerð með stórfjölskyldunni og leikhús um kvöldið! Gaman gaman!

Jæja hætti þessu bulli í bili,,,,,hafið það gott!
kv. Olla


Leikur dagsins

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...